Bræðraborgarstígur / Túngata2 rólur í góðu standi
Kastali með rennibraut í stóran sandkassa
Vegasalt
Fjögurralaufasmára- jafnvægisgormur
2 bekkir mót suðri á steyptum sökkli – mjög traustir
Ruslafata – mjög nauðsynlegt fyrirbæri nema í þetta skiptið var hún yfirfull.
Gott rými
Update: búin að heimsækja þennan 2x aftur og enn var ruslið fullt og almennt soldið sóðó.
Grjótagata / MjóstrætiFínn bekkur
Rólur 2
Hús
Eftir að mynd af fólki að eðla sig birtist á netinu hérna um árið í þessu barnahúsi er ég ekkert of spennt að fara að leika þarna...
LandakotstúnStórar ruslafötur
1 bekkur, vantar fleiri.
Konan með skeggið og enskumælandi með þýskum hreim eldri konan með staf.
2 rólur
1 vegasalt
1 lítil rennibraut
Mölin í kringum leiksvæðið fín, tekur athylgina frá ruslinu sem í henni leynist....
FreyjugataHreinleg möl?
1 bekkur
Engin ruslafata
Fín tæki:
Kastalinn góður
2 rólur
1 vegasalt
sandkassi
Jafnvægistæki sem S.MM fanst m jög gaman að, sat í miðjunni og lét mig um að hrista tækið.
Þrátt fyrir að allt grænt umhverfi vantar þá virtist þessi róló bara nokkuð góður, enda fórum við mæðgur yfir í garð Einars Jónssonar til að snæða matarkexið eftir viðburðaríkan dag í kastalanum.
Annars eru fleiri róló-ar sem ég á eftir að fjalla um, bíðið spennt! Síðan er síðan líka í viðgerð. Nýtt útlit birtist vonandi brátt... Hafið það gott í þessu fallega vori.