miðvikudagur, 1. ágúst 2007

Dyrin i Johnstown

Á hverjum morgni vakna ég við fuglana sem kvaka á útlensku. (Hummingbird getur flogið afturábak). Kanínurnar hoppa út um allt og eru brúnar og stelast í kálið og salatið í grænmetisgörðunum. Nú þekki ég hljóðið í þeim en áður fyrr ruglaði ég því oft við fuglahljóð þangað til nýlega þegar íkorni varð á vegi mínum þegar ég rölti niður að vatni til að gera morgunyogað. Íkorninn gaf frá sér þetta ákveðna hljóð sem ég hljóðrita ekki hér, en gleymi heldur ekki. Hér eru íkornarnir rauðir á meðan íkornarnir í görðum stórborga eru oft af gráu tegundinni sem er hin tegundin.

Um daginn var einhver stærri vera inni í runnanum, stærri heldur en kanína eða íkorni og ekki var það einn af hundunum. Annaðhvort eru það áhrif Harry Potter og ímyndunarafls míns eða þá að þetta hafi verið Wildcat eða Bobcat. Því miður kann ég ekki nöfnin á íslensku.

Flugurnar hérna eru kapítuli útaf fyrir sig, en maurarnir eru við það að ljúka flug-tímabili sínu. Já þeir fá vængi um stund, ég ímynda mér að það sé til þess að auðvelda þeim að fjölga sér. Þá fljúga þeir um stórir og stæðilegir (þetta eru engir smámaurar) hangandi aftan í hvor öðrum.

Á aftanverðum hálsi mínum má telja 7 vegleg flugnabit, líklega af ýmsum sortum. Horsefly er ein af þeim (með græn stór augu) svo ekki sé minnst á moskítófluguna sívinsælu. Ég anda djúpt og læt mig ekki klægja í bitin. Nú er ég komin með Bug Off-sprey, náttúrulegt flugnasprey úr ilmkjarnaolíum sem varnar fólki ágangi flugna (deet free). Ég velti því fyrir mér hvort ilmkjarnaolíur í sprey-inu séu mér og barninu sem vex í maganum á mér hættulegt en notkun ilmkjarnaolía á meðgöngu er talin varhugaverð. Ég tek ilmkjarnaolíurnar þó fram yfir eitrið sem er að finna í ,,venjulegu" flugnafæluspreyi.

Af dýrum neðansjávar sem ég hef komist í kynni við má m.a. nefna rauðan Jellyfish (sem útlendingurinn ástmaður minn, þýðir sem sultufiskur, ég ímynda mér aftur á móti að þetta sé marglytta með langa rauða anga, ekki glærar disklaga eins og finnast í Reykjavíkurhöfn þegar ég veiddi þar marhnúta og annað hér áður fyrr). Þessi Jellyfish stingur fólk þegar angar hans strjúkast yfir húðina en ef maður grípur hann í lófann stingur hann ekki. Sagt er að húðin í lófanum sé það sterk... hmmm. Krabbarnir ofan í vatninu eru af þeirri tegund að þeir eru ekki ætir, á stærð við lófa fullorðinnar manneskju og sandlitaðir. Þeir gera manni ekki mein, narta kannski bara í tærnar. Ekki má gleyma öllum þörungunum og þanginu sem ég traðka stöðugt á þegar ég veð út í fyrstu metrana, sting mér síðan útí og læt öldurnar umvefja mig.

5 ummæli:

Netfrænkan sagði...

En hvað þú ert á yndislegum stað. Ég var bara komin þangað líka í huganum við lesturinn. Njóttu þess sem allra allra best ásamt ófæddu barni og ástmanni. Knús!!

Hrefna sagði...

hæ elsku Anna Katrín, æðislegt að heyra þessar náttúrulýsingar...þetta á greinilega vel við þig. Hugsa oft um þig þessa dagana og vona að þér líði vel og ykkur öllum auðvitað.
Knús og kossar
Hrefna

AnnaKatrin sagði...

Takk fyrir kveðjurnar kæru konur.
ak

Nafnlaus sagði...

En skemmtileg lesning, maður sá þetta bara ljóslifandi fyrir sér í huganum. Hefurðu íhugað að skrifa bók ? :o)
Knús til ykkar í útlandinu.
xx
Ágústa

baba sagði...

saknisaknibaknibankbankbankibank...ég hef heyrt því fleygt að þið komið heim úr útlandinu eftir þessa helgi sem er að líða...tíminn líður svo hratt að ég verð stundum ringluð barasta...ég flyt til litlu ameríku á fimmtudegi til frama en ekki á miðvikudegi til mæðu þó ég fái lyklana afhenta þá...frami er álitlegri en mæða í mínum kerlingabókum...hlakka til að banka á hurðina þína bráðum og þú á mína....gleði og hamingja...ég bið að heilsa rauða íkornanum og segðu honum til hamingju að vera þarna í góðum gír...í bretalandi til dæmis fékk hann ekki að vera í friði og grái tók yfirhöndina....jóga við vatnið hljómar yndislega....flæðivatns er svo gott....kveðja frá guggulíusarlandi...