mánudagur, 8. desember 2008

um veðrið og annan fjanda

Þá er ég komin í hátíðarleyfi frá kennslu. Útskriftin í dag var skemmtileg og notaleg enda var ég að kveðja einstaklega góðan og samrýndan hóp fólks sem margt hvert hefur verið hér í um 10 ár. Við afhendingu prófskírteina fengu nemendur skírteini annarra og áttu að lýsa þeirri persónu þar til hinir höfðu giskað á hver átti skírteinið. Það sem kom upp var m.a.: hún er gömul, falleg, með stóran rass, skemmtileg, dugleg að tala íslensku, síminn hennar er alltaf að hringja, hún eldar góðan mat og hún þarf að læra að segja R.

Annars er niðurgangur daglegt brauð hér á bæ og bleyjurnar á baðinu ilma ekki vel. Vanalega er kúkurinn fullkominn. Þ.e.a.s. þéttir hnullungar sem maður gæti ímyndað sér að sjá í grínbúð. Það er alltaf jafngaman að skoða skítinn. Nú tekur við að segja niðurganginum stríð á hendur, góð ráð óskast. Þá er jólajóla farið að láta á sér kræla og seríur komnar út í glugga en ekkert á borð við systur mína sem bauð í dásamlega súpu í gær í skreytt og notalegt hús.

Þegar snjórinn sest niður og lýsir upp umhverfið líður mér vel. Mér líður líka vel í sundi þegar stjörnurnar tindra fyrir ofan mig og ljósin í vatninu umlykja mig. Það er nokkuð svalt að sjá lognið á undan storminum í bókstaflegri merkingu eins og í gær þegar ég sá hvíta úrkomuna nálgast, lita blásvartan himinninn gráan og loks byrja að berja á höfuð mitt. Þá er gott að geta farið inn.

4 ummæli:

baba sagði...

úff hvað ég þrái að komast í sund....vantar alveg soleis á vallarheiðina....sjáumst..

Fláráður sagði...

Ég á mun fleiri ráð í hina áttina. Þó man ég að bláberjasúpa, epli, gulrætur, bananar og rísgrautur á að vera stemmandi. Happí púpíng!

AnnaKatrin sagði...

takk fyrir ráðin, en nú er eyrnabólgan búin að slást í hópinn þannig að laukurinn lúlli kemur líka sterkur inn. Smjattpattar þeir byggðu hús...

Nikki Badlove sagði...

...ef eyrun eru alveg að fara með hana er ráð að hella úrvalsviskí í bómullarhnoðra og leggja undir og við eyrað (utan á) og lofa áfenginu að staðdeyfa svæðið...allt án inntöku....þetta gerðu foreldrar mínir fyrir mig....ef ekkert virkar er gott að þið alex fáið ykkur viskítár henni til samlætis....góð orka....