þriðjudagur, 7. febrúar 2006

gluggun

Ég hlæ þegar hún gengur niður götuna og skimar. Stoppar, lyftir fætinum tígullega upp á vel valinn stað og reimar. Ég fyllist undrun þegar hann gengur niður götuna borðandi júmbó-samloku. Plastið liðast af samlokunni og fellur á götuna þar sem það dansar fyrir framan hann í nokkra stund án þess að hann taki það upp, en borðar samlokuna með bestu lyst.

2 ummæli:

baba sagði...

glugginn þinn er svo skemmtilegur...alltaf eitthvað að gerast...það gerist voða fátt út um gluggann minn...bara aðrir gluggar á öðru húsi..en einu sinni sá ég gamla sæta konu pússa gluggann sinn...

misssebnin sagði...

það er líka gömul sæt kona fyrir utan gluggan minn og hún veitir mér innblástur...pússar glugga og gefur fuglum, ég á líka fallegt tré sem minnir mig á lífið þegar ég er í netheimum...